Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 377/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 377/2023

Þriðjudaginn 31. október 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. ágúst 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júlí 2023, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 6. júní 2023. Með ákvörðun, dags. 26. júlí 2023, var umsókn kæranda synjað á þeirri forsendu að hún stundaði nám.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. ágúst 2023. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 25. ágúst 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar bárust 7. september 2023 og voru þær kynntar stofnuninni með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. september 2023. Frekari athugasemdir bárust ekki.   

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað á þeim grundvelli að hún væri námsmaður á milli anna. Kærandi hafi sótti diplómanám í íslensku sem annað mál samhliða 50% vinnu hjá B og lokið því námi, þ.e. hún hyggist ekki halda áfram með diplómanámið. Sumarið 2023 hafi kærandi sótt um áframhaldandi starf en ekki fengið og hafi verið í virkri atvinnuleit síðan, án árangurs. Þess vegna hafi kærandi sótt um atvinnuleysisbætur en henni skiljist að hún eigi rétt á þeim þar sem starfssamningur hennar við B hafi ekki verið framlengdur, enda greiði kærandi af launum sínum í þar til gerða sjóði. Kærandi hafi skráð sig í nýtt nám við Háskóla Íslands veturinn 2023 til 2024. Hún óski þess að mál hennar verði tekið fyrir að nýju þar sem hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur sem launþegi en ekki námsmaður.

Í athugasemdum við greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til þess að kærandi hafi verið á atvinnuleysisbótum sumarið 2022. Hún hafi sótt um vinnur og loks fengið vinnu sem frístundaleiðbeinandi hjá B í byrjun október 2022. Hún hafi lokið námskeiðum í íslensku um vorið og sumarið og hafi viljað auka við færni sína í íslensku og þess vegna sótt um nám í diplómu í íslensku sem annað mál í Háskóla Íslands. Það hafi kærandi gert bæði vegna þess að það hafi verið ódýrara en önnur tungumálanámskeið og hún hafi heyrt að það væri betra nám. Hún hafi ekki haft rétt til að fara í 100% nám við Háskóla Íslands á haustönn þar sem hún hafi enn verið á atvinnuleysisbótum og þegar kærandi hafi fengið vinnu hafi verið orðið of seint að skrá sig í fleiri áfanga við háskólann. Þrátt fyrir að vera í 50% vinnu hjá B hafi kærandi ákveðið að taka 100% nám í diplómanáminu eftir jól og hún hafi náð að klára alla þá áfanga. Þetta hafi hjálpað kæranda við að fá inngöngu í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands á haustmisseri 2023 og nú sé hún byrjuð í því námi. Hins vegar hafi námið vorið 2023 verið án eininga og unnið á hennar forsendum með vinnu. Þegar samningur kæranda hafi runnið út vorið 2023 hafi hún sótt um áframhaldandi vinnu hjá B en ekki fengið starfið, meðal annars vegna kröfu um betri íslensku kunnáttu. Kærandi hafi nú aftur sótt um vinnu hjá B og fengið starf sem frístundaleiðbeinandi.

Kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur á þeim forsendum að hún væri í 50% starfi sem hún hafi misst. Þó hún hafi verið að læra íslensku hafi það verið án eininga og haft þann tilgang að auka málkunnáttu hennar og gera henni betur fært að vinna sína vinnu og lifa hér á landi. Kærandi óski að mál hennar verði endurskoðað á þessum grundvelli.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 6. júní 2023. Á umsókn hafi kærandi tilgreint að hún hefði verið skráð í nám á síðustu námsönn, án þess þó að hafa lokið því með prófgráðu. Kærandi hafi tekið fram að hún væri ekki skráð í nám á næstu námsönn.

Með erindi, dags. 21. júní 2023, hafi verið óskað frekari gagna frá kæranda. Óskað hafi verið eftir skólavottorði þar sem fram kæmi hvort kærandi væri enn skráð í nám eða hvort námi henni hefði verið lokið með prófgráðu. Auk þess hafi verið kallað eftir staðfestingu á starfstímabili vegna fyrri starfa hennar hjá B. Vinnumálastofnun hafi borist staðfesting á starfstímabili frá B þann 21. júní 2023. Þar komi fram að kærandi hafi starfað þar í 49%-52% starfshlutfalli á tímabilinu 3. október 2022 til 31. maí 2023. Þá hafi kærandi afhent Vinnumálastofnun yfirlit yfir námsferil hennar í Háskóla Íslands. Kærandi hafi lokið 30 ECTS-einingum á vorönn 2023 í diplómanámi í íslensku sem annað tungumál. Þá hafi hún afhent stofnuninni staðfestingu á greiðslu skólagjalda vegna háskólaársins 2023-2024.

Með erindi, dags. 3. júlí 2023, hafi verið óskað frekari upplýsinga um nám kæranda. Kæranda hafi verið greint frá því að samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum stundaði hún nám við Háskóla Íslands og stefndi á áframhaldandi nám á næstu önn. Aftur á móti teldist hver sá sem skráður hefði verið í nám á síðustu námsönn án þess að hafa sannanlega lokið náminu og hygðist halda náminu áfram á næstu námsönn ekki vera í virkri atvinnuleit. Kæranda hafi verið boðið að koma að skriflegum skýringum teldi hún þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun hefði undir höndum rangar eða ef aðstæður hennar hefðu breyst. Þann 13. júlí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist yfirlit yfir námsferil kæranda á haustönn 2023. Samkvæmt umræddu yfirliti sé kærandi skráð í 30 ECTS-eininga BA-nám í íslensku sem annað tungumál.

Með erindi, dags. 26. júlí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar um greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði verið synjað þar sem fyrir lægi að hún stundaði nám. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. jafnframt 6. mgr. 14. gr. sömu laga.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í c. lið 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Fyrir liggi að kærandi hafi stundað 30 ECTS-eininga diplómanám við Háskóla Íslands á vorönn 2023. Hún hafi því hætt því námi án þess að ljúka því. Þá sé kærandi skráð í 30 ECTS-eininga BA-nám við Háskóla Íslands á næstu námsönn, haustönn 2023. Að mati Vinnumálastofnunar sé ljóst með vísan til fyrirliggjandi gagna að kærandi sé sannarlega námsmaður í skilningi c. liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Hver sá sem stundi nám, sbr. c. lið 3. gr., teljist ekki tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á sama tímabili, enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þau rök er standi að baki þeirri meginreglu að námsmenn í skilningi c. liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi ekki rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga samhliða námi séu að slíkt þyki ekki samrýmast markmiðum laganna. Á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í því felist meðal annars að viðkomandi hafi vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf, hlutastarf eða vaktavinnu sé að ræða, sbr. 1. mgr. 14. gr. laganna. Ljóst þyki að námsmenn geti að jafnaði ekki talist í virkri atvinnuleit í skilningi laganna. Þá sé Menntasjóði námsmanna ætlað það hlutverk að aðstoða námsmenn um framfærslu þann tíma sem þeir stundi nám. Eins og áður segi hafi kærandi stundað fullt diplómanám á vorönn 2023 og muni sömuleiðis stunda fullt BA-nám á haustönn 2023. Að mati Vinnumálastofnunar teljist kærandi því „námsmaður á milli anna“ en í 6. mgr. 14. gr. sé sérstaklega kveðið á um rétt slíkra einstaklinga til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Ákvæði 6. mgr. 14. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hefur verið skráður í nám, sbr. c-lið 3. gr., á síðustu námsönn án þess að hafa sannanlega lokið náminu og hyggst halda námi áfram á næstu námsönn telst ekki vera í virkri atvinnuleit í námsleyfi samkvæmt kennslu- og/eða námskrá hlutaðeigandi skóla. Hið sama gildir um námsmenn sem skipta um skóla milli námsanna eða fara milli skólastiga.“

Ákvæði 6. mgr. 14. gr. hafi fyrst komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 134/2009. Með lagabreytingunni hafi réttur námsmanna til greiðslu atvinnuleysistrygginga að verulegu leyti verið þrengdur. Á móti hafi sá tími sem námsmenn geti geymt bótarétt sinn samkvæmt lögunum verið lengdur, sbr. 7. gr. laga nr. 134/2009 um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Í athugasemdum frumvarpsins er hafi orðið að lögum nr. 134/2009 segi meðal annars að ekki þyki samrýmast markmiðum laganna að námsmenn teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins í námsleyfum hlutaðeigandi skóla, enda sé kerfinu ætlað að tryggja launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt. Sjái námsmaður fram á að halda áfram námi á næstu námsönn takmarki það verulega þau störf sem unnt sé að bjóða viðkomandi, enda eingöngu tímabundin störf sem þá komi til greina. Í athugasemdum frumvarpsins komi skýrt fram að námsmenn teljist ekki tryggðir í námsleyfum skóla, svo sem jólaleyfum, páskaleyfum og sumarleyfum.

Túlka verði ákvæði 6. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að mati Vinnumálastofnunar á þann veg að það taki jafnframt til námsmanna sem hafi verið skráðir í tiltekið nám á vorönn en hætti því námi og skrái sig í annað nám, líkt og í tilfelli kæranda. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að sömu sjónarmið og liggi að baki ákvæði 6. mgr. 14. gr. laganna eigi jafnframt við um slík tilfelli. Ljóst sé að þau störf sem kærandi geti tekið séu verulega takmörkuð, enda eingöngu tímabundin störf sem komi til greina. Þá taki ákvæði 6. mgr. 14. gr. jafnframt til námsmanna sem skipti um skóla milli námsanna eða fari á milli skólastiga. Að mati Vinnumálastofnunar séu aðstæður kæranda ekki frábrugðnar þeirra sem skipti um skóla eða fari á milli skólastiga.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi sé ekki tryggð í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að því beri að hafna umsókn hennar um greiðslur atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun vísi til ákvæðis c. liðar 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, 1. mgr. 52. gr. og 6. mgr. 14. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Þá kemur fram í 6. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 að sá sem hafi verið skráður í nám, sbr. c. lið 3. gr., á síðustu námsönn án þess að hafa sannanlega lokið náminu og hyggist halda námi áfram á næstu námsönn teljist ekki vera í virkri atvinnuleit í námsleyfi samkvæmt kennslu- og/eða námskrá hlutaðeigandi skóla. Hið sama gildi um námsmenn sem skipti um skóla á milli námsanna eða fari á milli skólastiga.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi var námsmaður á milli anna, í skilningi 6. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006, þegar hún sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun í júní 2023. Þrátt fyrir að kærandi hafi einnig verið á vinnumarkaði verður ekki hjá því litið að sá sem stundar nám telst ekki tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 nema að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í 52. gr. laganna. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júlí 2023, um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum